Ungmennaráð Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) stendur nú í sjöunda sinn fyrir ráðstefnunni Ungt fólk og lýðræði. Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er Niður með grímuna –geðheilbrigði ungmenna á Íslandi og mun hún fara fram 16.– 18. mars á Hótel Selfossi. Ungmennaráð UMFÍ hefur veg og vanda að ráðstefnunni en jafnframt koma Héraðssambandið Skarphéðinn og Sveitarfélagið Árborg að […]
Ungmennafélag Kjalnesinga tók upp þá nýbreytni árið 2014 að innheimta bara eitt gjald fyrir allt árið og þá var hægt að taka þátt í öllum þeim íþróttagreinum sem í boði voru fyrir aldurshópana. Eftir að hafa reynt þetta hefur þetta því miður ekki gefist nógu vel, því hefur verið tekin ákvörðun um að innheimta gjöld […]
Eftir að hafa reynt þetta hefur þetta því miður ekki gefist nógu vel, því hefur verið tekin ákvörðun um að innheimta gjöld fyrir hverja íþrótt sem er stunduð, fyrsta grein kostar 17.500 kr. ef valin er önnur grein leggjast 5.000 kr. ofan á 17.500 kr. og þriðja grein 2.500 kr. Tekur þessi gjaldskrá í gildi […]
Reynslan hefur sýnt okkur að afar fáir eru að mæta á æfingar og því eru ekki æfingar, þegar ekki er skóli. Kv. UMFK
Við hjá UMFK tökum virkan þátt í Hreyfiviku / MoveWeek í samstarfi við íþróttahúsið Klébergi og sundlaugina. Í dag mánudag var opinn Zumba tími í íþróttahúsinu, því miður var ekki margt um manninn þar, en við gefumst ekki upp því á morgun þriðjudag verður lopasokkafótbolti í íþróttahúsinu á milli klukkan 19 og 20. Við hvetjum […]
Námskeiðið samanstendur af lyftingum,þolþjálfun, eiginþyngdar æfingum og teygjum. Mælingar í boði fyrir þá sem vilja. 6vikna námskeið 2x í viku. Þriðjudaga og fimmtudaga 18:00 – 18:50 námskeið hefst þriðjudaginn 22.september Fjölbreytt og skemmtilegt námskeið! Verð 10.000kr Skráning er hafin og stendur til 18.september Takmarkaður fjöldi þannig að fyrstur skráir fyrstur fær! Skráning á [email protected] Nafn, […]
Í dag var fyrsti tíminn í Íþróttaskólanum, sem ætlaður er fyrir börn 3-5 ára. Tíminn verður á mánudögum í vetur frá klukkan 16:45-17:30. Anna Lovísa nýji íþróttafulltrúinn okkar mun sjá um tímana og verða tímarnir í vetur þannig að foreldrar verða með börnum sínum í tímunum og virkir þátttakendur.
Íþróttafjör er fyrir nemendur í 1. – 4. bekk á skólatíma, eftir skóla verður einnig í boði fyrir þennan aldurshóp, fótbolti og frjálsar. Fyrir 5. – 10. Bekk verður í boði fitness eins hefur verið undanfarin ár og boltafjör, þar sem boltaíþróttir verða í fyrirrúmi eins og körfubolti, fótbolti o.fl. Við hvetjum alla til þess […]
Anna Lovísa Þorláksdóttir hefur verið ráðin sem íþróttafulltrúi UMFK. Anna Lovísa er með BA í tómstunda- og félagsmálafræðum og mun hún hefja störf hjá félaginu í águst. Við bjóðum hana velkomna og óskum henni velfarnaðar í starfi.
Hinir árlegu UMFK – Leikar voru haldnir að vanda á Kjalarnesdögum. Keppnin var mikil og hörð, enda er metnaður Kjalnesinga mikill. Því miður lauk nokkurra ára sigurgöngu fjólublárra að sinni, en ansi mjótt var á munum. Að lokum voru það appelsínugulir sem báru sigur úr býtum þetta árið.