Frjálsíþróttaskóli UMFÍ

Frjálsíþróttaskóli UMFÍ er ætlaður ungmennum á aldrinum 11–18 ára. Ungmennin koma saman á hádegi á mánudegi en skólanum lýkur á hádegi á föstudegi í sömu viku. Aðaláhersla er lögð á kennslu í frjálsum íþróttum. Auk frjálsra íþrótta er farið í sund, leiki, óvissuferðir og haldnar kvöldvökur. Ungmennin borga 20.000 þúsund krónur þáttökugjald en innifalið í verðinu er kennsla, fæði og gisting alla dagana.