Í dag var fyrsti tíminn í Íþróttaskólanum, sem ætlaður er fyrir börn 3-5 ára. Tíminn verður á mánudögum í vetur frá klukkan 16:45-17:30.
Anna Lovísa nýji íþróttafulltrúinn okkar mun sjá um tímana og verða tímarnir í vetur þannig að foreldrar verða með börnum sínum í tímunum og virkir þátttakendur.