Hinir árlegu UMFK – Leikar voru haldnir að vanda á Kjalarnesdögum. Keppnin var mikil og hörð, enda er metnaður Kjalnesinga mikill.
Því miður lauk nokkurra ára sigurgöngu fjólublárra að sinni, en ansi mjótt var á munum. Að lokum voru það appelsínugulir sem báru sigur úr býtum þetta árið.