Fara í efni

UMFK · Kjalarnes

Sögusafn

Fréttir og frásagnir úr starfi félagsins frá 2009. Dagsetningar og efni eru varðveitt úr eldra safni UMFK.

332 færslur

Æfingatafla 2026-2027

Lesa færslu

Æfingatafla 2025-2026

Lesa færslu

Ársreikningur 2024

Lesa færslu

Ný tafla

Lesa færslu

Æfingatafla

Smá breyting á æfingatöflu þar sem 1-2 bekkur verður sér og 3-7 bekkur æfir sér.

Lesa færslu

Æfingatafla 2023-2024

Æfingatafla vetrarins er tilbúin. Æfingar hefjast á miðvikudaginn samkvæmt töflu. Sundæfingar byrja þó 30 ágúst. Mikil vinna og metnaður hefur verið lögð í það að ráða inn færa og reynda þjálfara. Munum við kynna þá hér á síðunni okkar. Skráning fer í gegnum sportabler. Hægt er að fara beint á skráninga síðu með því að ýta á skráning iðkennda hér á síðunni. Alexander Aron er nýr yfirþjálfari hjá UMFK. Ef eitthvað er þá hvetjum við ykkur til í að heyra í honum, við viljum gera vel og enn betur en hefur verið gert síðustu ár. Vegna skráninga, gjalda og annars sendið tölvupóst á [email protected]

Lesa færslu

Breytingar á æfingatöflu

Það þurfti að gera örlitlar breytingar á tímatöflunni – hægt er að sjá nýja töflu hér.

Lesa færslu

Æfingatafla 2023-2024

Þjálfarar í vetur eru: Fótbolti: Patrekur Orri Guðjónsson – 21 árs leikmaður Aftureldingar, uppalinn Mosfellingur og hefur spilað með Aftureldingu upp alla yngri flokkana. Hefur UEFA B þjálfaragráðu frá KSÍ, fyrrverandi þjálfari 8. flokks Aftureldingar og núverandi þjálfari Álafoss í 5. deild karla. Daníel Ingi Jónsson 21 árs leikmaður Hvíta Riddarans sem hefur spilað upp alla yngri flakka Aftureldingar. Fyrrverandi þjálfari 8. flokk Aftureldingar og er núverandi þjálfari Álafoss í 5. deildinni. Sund Sigurósk er 26 gamall sundmaður frá Ármanni. Í dag æfir hún sundknattleik sér til gamans hjá sama félagi, á milli þess að hoppa út í sjóinn og fara í lengri gönguferðir um hálendi Íslands. Hún er að ganga á þriðja ár sem þjálfari hjá Sunddeild Aftureldingar sem þjálfari yndislega krakka í bronshóp og er spennt að kynnast samfélaginu á kjalarnesi betur.

Lesa færslu

Aðalfundur UMFK 2021

Aðalfundur UMFK sem fram átti að fara í vor en var frestað vegna Covid takmarkana verður haldin miðvikudaginn 3. nóvember klukkan 17:00 Í hreppnum. Dagskrá: Fundur settur Kosning fundarstjóra og fundarritara Skýrsla stjórnar Ársreikningar Lagabreytingartillögur Kosning stjórnar Önnur mál Kv stjórn UMFK

Lesa færslu

Æfingatafla vetrarins og nýtt skráningarkerfi

Æfingar hefjast mánudaginn 30 ágúst. Æfingatafla er í linknum fyrir neðan. æfingatafla2021-2022 Nýtt skráningarkerfi er tekið upp í vetur, er það hugsað til þess að einfalda starf félagsins, bæta samskipti þjálfara og foreldra og svo utan umhald verði betra. Kerfið er í þróun hjá okkur en það er hægt að skrá iðkenndur hér Einnig er valið um hvernig eigi að greiða, hægt er að nýta frístundastyrk, fá greiðsluseðil eða greiða með korti. Ef þið lendið í vandræðum sendið tölvupóst á [email protected]. UMFK heldur æfingagjöldum í sömu upphæð og undafarin 3 ár eða 25.000 á önn. Ef skráð er í meira en eina íþrótt þá reiknast 100% afsláttur af grein númer 2. Grunngjaldið er þó alltaf 25.000. Nánari leiðbeiningar eru hér

Lesa færslu

Fréttir frá UMFK

23.8.2021 Nú fer vetrarstarfið hjá okkur að hefjast. Æfingar byrja mánudaginn 30. ágúst. Verið er að leggja lokahönd á æfingatöflu vetrarins. Í boði verður fótbolti, körfubolti og sund fyrir börn á grunnskólaaldri. Verið er að setja upp nýtt kerfi fyrir skráningar sem verður líka tilbúið í vikunni, markmiðið með því er að bæta samskipti á milli þjálfara og foreldra, gera þau auðveldari og til að minnka flækjustigið. Við erum spennt fyrir vetrinum, okkur hjá UMFK langar ávallt að gera betur í ár en í fyrra. Við hvetjum foreldra/forráðamenn til að fylgjast með á heimasíðu og facebook síðu UMFK fyrir nánari fréttir. Ef spurningar vakna ekki hika við að hafa samband á netfangið [email protected]

Lesa færslu

Aðalfundur UMFK (frestað)

Aðalfundur UMFK verður miðvikudaginn 30 mars klukkan 17:00 í Fólkvangi fundinum er frestað vegna samkomutakmarkana. Fundur setturKosinn fundarstjóri og fundarritariSkýrsla stjórnarÁrsreikningarLagabreytingatillögurKosning stjórnar Önnur mál kv Stjórnin

Lesa færslu